Tónlist

Sigur Rós í mynd DiCaprio

Sigur Rós á lag í heimildarmyndinni 11th Hour sem Leonardo DiCaprio framleiðir.
Sigur Rós á lag í heimildarmyndinni 11th Hour sem Leonardo DiCaprio framleiðir.

Hljómsveitin Sigur Rós á lag í heimildarmyndinni 11th Hour sem hjartaknúsarinn Leonardo DiCapro framleiðir og talar inn á. Á meðal fleiri sveita sem eiga lög í myndinni eru Coldplay og Cocteau Twins. Myndin fjallar um umhverfismál og á meðal þeirra sem tjá skoðanir sínar í henni eru Stephen Hawking, James Woolsey, fyrrum forstjóri CIA, og Mikhail Gorbachev, fyrrum forseti Sovétríkjanna.

 

Leonardo DiCaprio lætur umhverfismál sig varða í heimildarmyndinni 11th Hour.

Ekki er langt síðan Sigur Rós seldi lag sitt Popplagið í sýnishorn fyrir stórmyndina The Invasion með Nicole Kidman og Daniel Craig í aðalhlutverkum. Sveitin hefur áður átt lög við sýnishorn úr myndinni Children of Men og í Vanilla Sky með Tom Cruise í aðalhlutverki og The Life Aquatic With Steve Zissou með Bill Murray. Einnig hafa lög sveitarinnar m.a. fengið að hljóma í sjónvarpsþættinum CSI.

Meðlimir Sigur Rósar eru um þessar mundir staddir í Los Angeles að ljúka við hljóðsetningu á tónleikamynd sinni Heima sem verður frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík 27. september. Fer myndin í almennar sýningar 5. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×