Menning

Atgervisblómi á Akureyri

Magnús Þór Jónsson sýnir myndverk sprottin af ferli Jónasar.
Magnús Þór Jónsson sýnir myndverk sprottin af ferli Jónasar.

Í kvöld verður Akureyrarvakan sett við hátíðlega athöfn í Lystigarðinum. Á laugardag og sunnudag verður íburðarmikil dagskrá í bænum og öllu til tjaldað: bæði utanhúss og innan verður margt skemmtilegt á seyði og nú verða Akureyringar að biðja um gott veður.

Það er stílað upp á hlýja stemningu strax í kvöld: „kannski einhver þrumi ræðu“ segir í kynningarplöggunum. Þar verður hljóðfærasláttur af fjölbreytilegu tagi, garðurinn verður upplýstur, rétt eins og stemning var í lystigörðum áður fyrr, en ballið byrjar á morgun með þéttri dagskrá.

Hafmeyja á Pollinum
Hekla Dögg Tilnefnd fyrir ljósaverk sín og fossamynd.

Þegar kl. 11.30 er myndlist í gangi, Anna Richards flytur gjörning á floti og er hann hluti af heimildarmynd um sjósund. Myndlistin er í fyrirrúmi á Akureyrarvöku að þessu sinni og ekki er hún öll á safnaveggjum.

Ekkert er gert lengur án peninga.

Saga Kapital hefur styrkt sögusýningu í Gamla barnaskólanum við Hafnarstræti sem opnar kl. 12. Þar verður djass, ljósmyndasýning og leiðsögn í boði kl 12.00 – 16.00. SÍUNG - samtök barna og unglingabókahöfunda - bjóða uppá sögustund á Amtsbókasafninu kl. 14 og í þann mund geta fullorðnir farið á Húsgagna og nytjamarkað að Hömrum sem stendur til 18 og er til styrktar söfnun fyrir Mósambík

Stórsýningar
Hrafnkell Sigurðsson myndlistarmaður Er tilnefndur fyrir nýstárleg málverk sín.

Tvær stórar myndlistarsýningar verða opnaðar í eftirmiðdag á laugardeginum: kl. 14 er opnun á samsýningu 22 myndlistamanna í tilefni 200 ára fæðingarafmælis Jónasar Hallgrímssonar. „Skyldi ég vera þetta sjálfur!“ í Ketilhúsinu. Þorvaldur Þorsteins, Áslaug Thorlacius, Magnús Þór Jónsson og fleiri sýna.

Hin er Sjónlist 2007 í Listasafni Akureyrar, samsýning þeirra listamanna sem tilnefndir eru til Sjónlistarverðlaunanna sem veitt verða öðru sinni í haust.

Markmið með þeim er þríþætt: 1) að beina sjónum að framúrskarandi framlagi íslenskra myndlistarmanna og hönnuða sem starfa hér heima og erlendis, 2) stuðla að aukinni þekkingu, áhuga og aðgengi almennings að sjónlistum og 3) hvetja til faglegrar þekkingarsköpunar og bættra starfsmöguleika sjónlistafólks á Íslandi.

Flugskýli dugar
Áslaug Thorlacius myndlistarmaður Sýnir verk á Jónasarmessu

Sex listamenn voru tilnefndir til Sjónlistaorðunnar í lok maí og hljóta tveir þeirra ríkuleg verðlaun fyrir framlag sitt, annar á sviði myndlistar og hinn á sviði hönnunar. Tvær milljónir króna koma í hlut hvors listamanns sem hreppir fyrsta sæti í sínum flokki, en þetta eru hæstu verðlaun sem veitt eru á sviði myndlistar og hönnunar hér á landi. Verðlaunaafhendingin fer fram 21. september í Flugsafni Íslands á Akureyri .

Þá er tilkynnt hver fær heiðursorðu Sjónlistar fyrir æviframlag til sjónlistanna. Daginn eftir verður efnt til alþjóðlegrar ráðstefnu um siðfræði og sjónlist þar sem breski heimspekingurinn Matthew Kieran og sænski hönnuðurinn Olof Kolte deila skoðunum sínum..

Tilnefningar

Þeir sem tilnefndir voru í ár eru Birgir Andrésson fyrir einstakt framlag til könnunar á sambandi sjónrænnar skynjunar og merkingu texta í verkunum Black-out og Build. Hekla Dögg Jónsdóttir fyrir Fossinn, röð verka í sýningunni Ljósaskipti og Fireworks for LA sem ætlað er að lýsa upp umhverfið og skerpa skilningarvitin.

Hrafnkell Sigurðsson fyrir ljósmyndaröðina Áhöfn sem sýnd var fyrst á sýningunni Eiland í Gróttu og olíuverkin Afhafnasvæði sem sýnd voru í Gallerí Suðsuðvestur, en þessi verk þykja varpa nýju ljósi á íslenska sjómenn .Fyrirtækið Nikita fyrir fatnað á konur sem stunda snjóbrettaíþróttir, en vörur Nikita eru nú seldar í sérverslunum í þrjátíu löndum. Studio Granda fyrir viðbyggingu við Vogaskóla í Reykjavík og einbýlishús á Hofi á Höfðaströnd og síðast en ekki síst Össur hf. fyrir gervifótinn Proprio Foot.

Ópera við GleráÍ vetur réðist Ópera Skagafjarðar í það stórvirki að flytja óperu Verdis, La Traviata. Nú eru Skagfirðingar mættir til Akureyrar og flytja verkið kl. 16, ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Alexandra Chernyshova er krafturinn á bak við þetta stórvirki og syngur hlutverk Violettu. Heimildarmynd, flutningar og fleiraFrumsýning á „Stolt siglir fleygið mitt“, heimildarmynd Gísla Sigurgeirssonar um Súluna verður í Borgarbíói í eftirmiðdaginn. Seinna um kvöldið, kl. 20.30. flytur hin sögufræga verslun, Frúin í Hamborg, með manni og mús. Þá er líka tekinn að færast karnivalmórall í mannskapinn: enda boðið til stórtónleika með Samúel Jóni Samúelssyni og BIG BANDI á útisviði í Listagilinu kl 21. Réttum einum og hálfum tíma síðar hefst Bylting Fíflanna undir kjörorðinu: „Illgresi allra sveita sameinist. Vei ykkur samborgarar sem ekki takið fífilinn í hönd og fylgið með. Tökum yfir og fylkjum liði við Ketilhúsið“. Þangað skulu byltingasveitir mæta kl. 22.30 . Þar mun Don Kíkote verða fluttur í leikstjórn Kristjáns Ingimarssonar. Margt margt fleiraÝmislegt annað er á seyði í bænum þessa helgi og er hollast heimamönnum að kynna sér vel dagskrána því nóg er í boði, samsæti, tónlist, smærri sýningar. Draugaganga og margt fleira.

Akureyringar eru að stefna í sína menningarnótt með glæsibrag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×