Sport

Mayweather boðnar 630 milljónir fyrir að mæta Hatton

Ricky Hatton vill ólmur berjast við Floyd Mayweather
Ricky Hatton vill ólmur berjast við Floyd Mayweather AFP

Umboðsmaður breska hnefaleikarans Ricky Hatton hefur boðist til að greiða Floyd Mayweather 630 milljónir króna fyrir að taka hanskana fram á ný og berjast við Hatton. Mayweather hefur látið í það skína að hann sé tilbúinn að berjast við Hatton, en það verður þá ekki ókeypis frekar en annað þegar stærstu nöfnin í hnefaleikunum eru annars vegar.

Hatton er nú tæknilega án umboðsmanns því umboðsmaður hans Dennis Hobson er búinn að klára þriggja bardaga samning sem hann gerði við hann. Til greina kemur að faðir Hatton gerist umboðsmaður hans á ný, en auk þess hafa bæði Oscar de la Hoya og Don King verið að bera víurnar í hann undanfarið. Hobson ætlar þó ekki að láta staðar numið eins og þetta nýja útspil hans sýnir.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×