Fótbolti

Nurnberg þýskur meistari

NordicPhotos/GettyImages

Nurnberg tryggði sér í gær dramatískan sigur í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar þegar liðið lagði nýkrýnda deildarmeistara Stuttgart 3-2 í framlengdum úrslitaleik á Ólympíuleikvangnum. Stuttgart spilaði með 10 menn frá 31. mínútu þegar markaskoraranum Cacau var vísað af velli fyrir að kýla andstæðing sinn.

Danski landsliðsmaðurinn Jan Kristiansen skoraði sigurmark Nurnberg á 109. mínútu framlengingar og tryggði liði sínu fyrsta bikarmeistaratitilinn í 45 ár.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×