Birgir Leifur Hafþórsson lék í dag á þremur höggum yfir pari þriðja keppnisdegi South African Airways-mótinu í Suður-Afríku en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.
Hann hóf snemma leik í morgun og lék á samtals 75 höggum og var í 60.-63. sæti þegar hann lauk keppni í dag.
Birgir Leifur byrjaði vel í morgun og var á einu höggi undir pari eftir fyrstu átta holurnar eftir að hafa fengið fugl á fimmtu holu í morgun sem er par fimm hola.
En hann lenti í vandræðum á níundu holu sem er par fjögur og fékk skramba á henni. Þar með lék hann fyrri níu holurnar á 37 höggum, einu yfir pari vallarins.
Hann byrjaði á því að fá par á fyrstu tveimur holunum á seinni níu en svo kom skolli á næstu tveimur. Hann náði síðan að halda sér á pari á síðustu fimm holum vallarins.
Þriðji keppnisdagur: Þrír yfir pari.
1. braut: Par 4 (390 metrar) - 4 högg (par)
2. braut: Par 4 (390 metrar) - 4 högg (par)
3. braut: Par 5 (570 metrar) - 5 högg (par)
4. braut: Par 3 (205 metrar) - 3 högg (par)
5. braut: Par 5 (485 metrar) - 4 högg (fugl)
6. braut: Par 4 (332 metrar) - 4 högg (par)
7. braut: Par 4 (390 metrar) - 4 högg (par)
8. braut: Par 3 (209 metrar) - 3 högg (par)
9. braut: Par 4 (431 metrar) - 6 högg (skrambi)
Fyrri níu (par 36): 37 högg (einn yfir pari)
10. braut: Par 4 (353 metrar) - 4 högg (par)
11. braut: Par 4 (403 metrar) - 4 högg (par)
12. braut: Par 3 (183 metrar) - 4 högg (skolli)
13. braut: Par 5 (531 metrar) - 6 högg (skolli)
14. braut: Par 4 (356 metrar) - 4 högg (par)
15. braut: Par 3 (196 metrar) - 3 högg (par)
16. braut: Par 4 (422 metrar) - 4 högg (par)
17. braut: Par 4 (405 metrar) - 4 högg (par)
18. braut: Par 5 (550 metrar) - 4 högg (par)
Seinni níu (par 36): 38 högg (tveir yfir pari)
Samtals: 3 yfir pari
Fyrsti keppnisdagur: 79 högg (sjö yfir pari)
Annar keppnisdagur: 73 högg (einn yfir pari)
Þriðji keppnisdagur: 75 högg (þrír yfir pari)
Samtals: 227 högg (ellefu yfir pari, 60.-63. sæti)