Golf

Masters hefst í kvöld: Allra augu á Rory McIlroy

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rory McIlroy fagnar hér með dóttur sinni, Poppy, á Augusta í gær.
Rory McIlroy fagnar hér með dóttur sinni, Poppy, á Augusta í gær. vísir/getty

Fyrsta risamót ársins, Masters, hefst á Augusta golfvellinum í kvöld. Biðinni er loksins lokið. Það verður klárlega hart barist um græna jakkann í ár.

„Það eru allir að bíða eftir að Rory McIlroy klári alslemmuna. Svo er ekki hægt að taka Scottie Scheffler út úr dæminu,“ segir Ingi Rúnar Gíslason golfsérfræðingur við íþróttadeild.

Hann er líka spenntur að sjá hvað hans uppáhaldskylfingur, Ludvig Åberg, gerir í ár eftir að hafa lent í öðru sæti fyrir ári síðan.

„Hann er nýlegur á mótaröðinni en líkar vel á vellinum eins og við sáum í fyrra. Ég held að hann eigi eftir að láta til sín taka.“

Það þykir líka boða gott að vinna síðasta mót fyrir Masters. Það er einnig sterkt að vera örvhentur á Masters.

„Örvhentum gengur oft vel á þessum velli og því gæti Brian Harman komið á óvart líka.“

Veðurspáin er góð fyrir helgina og því er ólíklegt að veðrið trufli mótið að þessu sinni. Allir ættu því að geta spilað sitt besta golf.

Mótið er sýnt á Stöð 2 Sport 4 og hefst útsending í kvöld klukkan 19.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×