Williams og Fisher tæpir hjá Utah í nótt 30. maí 2007 19:10 Williams og Fisher eru báðir tæpir fyrir leikinn í kvöld NordicPhotos/GettyImages
San Antonio Spurs getur tryggt sér sæti í úrslitum NBA deildarinnar í kvöld með heimasigri á Utah Jazz í fimmta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar. Leikurinn verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan eitt eftir miðnætti. Tveir af byrjunarliðsmönnum Utah eru tæpir fyrir leikinn. Leikstjórnandinn Deron Williams er þannig tognaður á fæti og Derek Fisher, sem byrjar venjulega í stöðu skotbakvarðar, er í New York þar sem dóttir hans er í aðgerð vegna alvarlegs sjúkdóms. Fisher á flug til Texas og ætti að ná leiknum þó lítið megi útaf bera svo hann missi af byrjun leiksins í nótt. "Ég get ekki treyst á það að einn eða neinn af leikmönnunum spili fyrr en ég sé þá í búningnum fyrir leik," sagði Jerry Sloan þjálfari Utah. "Ef þeir komast ekki í leikinn, verð ég bara að nota aðra menn í stað þeirra." Ljóst er að Utah á eftir að sakna Williams mikið ef hann getur ekki spilað, því leikstjórnandinn ungi hefur farið á kostum í einvíginu við San Antonio. Hann er með 29,5 stig og 9,3 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum fjórum. Williams mætti á æfingu í dag klæddur í stórt hlífðarstígvél og neitaði að svara nokkru um það hvort hann yrði með í kvöld. "Við sjáum til í kvöld," sagði hann þegar hann var spurður hvort hann gæti spilað.
NBA Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Sjá meira