Golf

Birgir á pari í rokinu

Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrsta hringinn á Arcos Garden vellinum á Spáni 72 höggum í dag og var því á pari. Mótið er 2. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. 19 efstu kylfingarnir á mótinu tryggja sér rétt til að spila á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina þann 15. nóvember og er Birgir í ágætri stöðu eftir fyrsta hring.

Birgir sagði aðstæður á vellinum hafa verið erfiðar vegna hvassviðris í samtali við kylfing.is í dag, en samkvæmt fréttinni er Birgir í kring um 20. sæti á mótinu. Um helmingur keppenda átti þó eftir að ljúka hringnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×