Innlent

Samhjálp falið að taka við verkefnum Byrgisins

Félagsmálaráðuneytið hefur ákveðið á grundvelli skýrslu Ríkisendurskoðunar að hætta að styrkja rekstur Byrgisins og vísa málinu til Ríkissaksóknara. Þetta kom fram í máli Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra á blaðafundi sem hann efndi til kl. 17 vegna skýrslunnar. Samhjálp hefur verið falið að taka við verkefnum Byrgisins.

Magnús sagði að Guðmundi Jónssyni, forstöðumanni Byrgisins, hefði verið tilkynnt um þetta og sagði Guðmundur á Rás 2 í dag að ákveðið hefði verið að loka Byrginu. Samhjálp hefur verið falið að sjá um reksturinn að Efri-Brú á næstunni en félagsmálaráðuneytið hefur átt samstarf við Samhjálp og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar í málinu. Þá hefði Landlæknisembættið lýst sig tilbúið að útvega lækna til að hjálpa skjólstæðingum Byrgisins, en sex manns hafa dvalið þar að undanförnu.

 

Þá greindi Magnús Stefánsson frá því að fasteignir ríkissjóðs ættu húsnæðið að Efri-Brú í Grímsnesi og nú myndi stofnunin fara yfir samning sinn við Byrgið. Þá mun hópur á vegum dómsmálaráðuneytisins undir forystu Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, fjalla um málefni langt leiddra vímuefnaneytenda.

Aðspurður hvort einhver innan stjórnkerfisins yrði dreginn til ábyrgðar fyrir málið innan stjórnkerfisins sagðist Magnús ekki vita það. Hér væri ekki um þjónustusamning að ræða heldur styrki til Byrgisins en eftirliti hefði verið ábótavant. Ljóst væri þó að athuga þyrfti innra eftirlit ráðuneytisins.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um fjármál meðferðarheimilisins Byrgisins, sem birt var í dag, er kolsvartur áfellisdómur yfir stofnuninni og niðurstöður hennar benda til að ólöglega hafi verið staðið að rekstrinum. Ríkisendurskoðun leggur til að ríkissjóður hætti að veita fé til Byrgisins og málinu verði vísað til Ríkissaksóknara.

Í skýrslunni segir meðal annars að fjármunir sem sannanlega hafa runnið til stjórnenda og starfsmanna Byrgisins séu langt umfram það sem fram komi í bókhaldi eða ársreikningum félagsins. Hér er um tugi milljóna króna að ræða.

Viðtal við Guðmund Jónsson í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni




Fleiri fréttir

Sjá meira


×