Fótbolti

Kahn gæti framlengt við Bayern

NordicPhotos/GettyImages

Svo gæti farið að markvörðurinn Oliver Kahn framlengi samning sinn við Þýskalandsmeistara Bayern Munchen ef marka má orð framkvæmdastjóra félagsins. Mistök markvarðarins urðu til þess að Bayern náði aðeins 1-1 jafntefli við Bremen í stórleik helgarinnar í Þýskalandi, en Karl-Heinz Rummenigge segir hann eiga nóg eftir.

"Oliver er með samning út næsta ár, en ég held að við eigum eftir að fá mikið frá honum enn. Hann verður sjálfur að ákveða framhaldið, en ég er viss um að hann spjallar við okkur í desember og þá getum við tekið ákvörðun um samning hans," sagði Rummenigge.

Þjálfarinn Ottmar Hitzfeld segir að þó Kahn hafi orðið á í messunni um helgina, megi menn ekki gleyma því hvað hann sé liðinu mikilvægur. "Hann hefði kannski ekki átt að fá þetta mark á sig, en hann bjargaði okkur samt frá því að detta út úr Meistaradeildinni gegn Real Madrid," sagði Hitzfeld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×