Fámennur hópur trúleysingja hindrar kirkjustarf í Seljahverfi Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. nóvember 2007 10:51 Bolli Pétur Bollason, prestur í Seljakirkju.
Bolli Pétur Bollason, prestur í Seljakirkju, telur að það sé vegna athugasemda frá fámennum en háværum hópi fólks sem leikskólastjórnendur í Seljahverfi hafi tekið þá ákvörðun að gera hlé á samstarfi kirkjunnar við leikskólana. Í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær var greint frá því að þrír af fimm leikskólum í hverfinu hefðu tekið fyrir heimsóknir presta í leikskólana. „Við höfum átt gott samstarf við stjórnendur leikskólanna og reyndar grunnskólanna líka," segir Bolli. Hann segir að þau rök sem hafi verið færð fyrir því að slíta samstarfi við skólana hafi verið þau að á Íslandi væri að skapast fjölþjóðlegt menningarsamfélag og sum börnin væru ekki kristinnar trúar. „Reyndar verð ég að taka fram að það er ekki fólk af erlendum uppruna sem er að gera athugasemdir. Það eru miklu frekar Íslendingar sem standa utan trúfélaga," segir Bolli til útskýringar. Bolli segir að samstarf við grunnskólana í hverfinu gangi vel en þar eru bæði Seljaskóli og Ölduselsskóli. „Að minnsta kosti annar þeirra er að íhuga að taka upp vinaleiðina og við höfum við að ræða um það við skólastjórnendur," segir Bolli en nefnir ekki hvor skólinn það er. Bolli segist glaður yfir því hversu vel sér sé tekið á meðal barna í hverfinu en foreldrar hafa haft á orði að hann sé stjarna í þeirra augum.
Mest lesið Órói mældist við Torfajökul Innlent Sagði Sólveigu Önnu tala eins og Trump: „Horfðu í spegil!“ Innlent Íslenskir höfundar meðal fórnarlamba í stórfelldum þjófnaði Meta Innlent Tvær unglingsstúlkur í haldi: „Þetta er fólkið sem verið er að hagnýta“ Innlent Steinn liggur á grúfu og skríður niður Esju Innlent Grunur um hópnauðgun í Reykjavík Innlent Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Erlent Oddviti ætlar ekki að hætta sem formaður Veiðifélags Þjórsár Innlent Vill tollalaus viðskipti við Evrópu Erlent Sá eini fagmenntaði missti vinnuna Innlent Fleiri fréttir Órói mældist við Torfajökul Oddviti ætlar ekki að hætta sem formaður Veiðifélags Þjórsár Sagði Sólveigu Önnu tala eins og Trump: „Horfðu í spegil!“ Tvær unglingsstúlkur í haldi: „Þetta er fólkið sem verið er að hagnýta“ Líklega fórnarlömb mansals og óhugnanlegt myndband af árás á bráðaliða Grunur um hópnauðgun í Reykjavík Íslenskir höfundar meðal fórnarlamba í stórfelldum þjófnaði Meta Sýna íslensku með hreim þolinmæði Steinn liggur á grúfu og skríður niður Esju Sautján ára stúlka í haldi vegna innflutnings gerviópíóða Í skýjunum yfir samstöðu þjóðarinnar að byggja nýtt athvarf Vita æ meira um skaðleg áhrif rafsígarettna Áfram landris og skjálftar á Reykjanesskaga Langvarandi áhrif rafrettureykinga og nýtt Kvennaathvarf Öskjuhlíðartimbrið komið til Eskifjarðar Veiðigjöld, tollahækkanir og skipulagður ritstuldur í Sprengisandi Dælubílarnir kallaðir út en húsráðandi náði að slökkva eldinn Söfnuðu 140 milljónum fyrir Kvennaathvarfið Beitti barefli í líkamsárás Veitingahús vilji ekki bara ráða ófaglært starfsfólk Reynst erfitt að laga tvígreiðsluvillu en gefast ekki upp Tveir unnu tæpar 80 milljónir hvor Vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara 32 Úkraínubúar á íslenskunámskeið á Selfossi Sektaður fyrir of stutt bil milli bíla Þúsund sinnum sterkara en morfín og erfitt að þekkja Þúsund sinnum sterkara en morfín og safnað fyrir Kvennaathvarfi Ríkissaksóknari hefur óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar Vill að flugumferð verði beint frá loftrými kirkjunnar á meðan þau flytja Bach Setja skorður á tjáningu meðlima til að „kæla aðeins niður hitann“ Sjá meira