Friðrik Ragnars: Ég var orðinn skíthræddur 20. mars 2007 22:38
Friðrik Ragnarsson sagði sína menn í Grindavík hafa spilað sinn besta bolta í vetur í fyrri hálfleiknum gegn Skallagrími í Borgarnesi í kvöld. Hann sagðist gríðarlega stoltur af strákunum og hlakkar til að mæta sínum gömlu félögum í Njarðvík í undanúrslitunum. "Fyrstu fimmtán mínúturnar hjá okkur í þessum leik voru það langbesta sem ég hef séð frá þessu liði í vetur. Við náðum yfir 20 stiga forskoti og gríðarleg orka í mannskapnum. Það vill oft gerast að lið sem lenda svona undir og þurfa að koma til baka eins og Borgnesingar í kvöld, springa hreinlega á limminu - og það gerðist í kvöld. Ég er gríðarlega stoltur af mínum mönnum að hafa klárað þetta," sagði Friðrik. En var ekki farið að fara um hann þegar heimamenn í Skallagrími komust yfir þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum. "Veistu, ég ætla ekkert að vera að bulla í þér - ég var orðinn skíthræddur, en við náðum að halda áfram og keyra á þá. Ef maður á að fara niður í svona leik, þá á maður að fara niður spriklandi." Njarðvíkingar verða næstu mótherjar Grindvíkinga og ljóst að þeirra bíður gríðarlega erfið rimma gegn Íslandsmeisturunum. Friðrik er Njarðvíkingum vel kunnugur, enda spilaði hann með liðinu um árabil og gerði það síðar að Íslandsmeisturum sem þjálfari. "Þetta verður rosaleg sería - það er á hreinu. Við spiluðum tvisvar við þá í vetur og í fyrra skiptið töpuðum við með einu stigi í framlengingu og síðari leiknum með þremur stigum. Ef andinn í hópnum hjá mér verður eins og hann er núna eigum við alveg að geta velgt þeim undir uggum," sagði Friðrik að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Fótbolti Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Enski boltinn „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Sport Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Fótbolti Fleiri fréttir Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Adam Silver ver nýjan svuntuskatt NBA deildarinnar Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Faðir Kobe Bryant er látinn Njarðvíkingar búnir að finna sér Bandaríkjamann Þrjátíu stiga tap gegn Slóvenum en sextán liða úrslit framundan Keflvíkingar fá þýskan framherja Stelpurnar komust ekki upp í A-deildina Tólf ár á milli fjórðu og fimmtu Ólympíuleika hennar Bronny James hefur klikkað á öllum skotunum sínum Stórkostlegt svar hjá íslensku strákunum eftir skellinn í gær Fáliðað lið Ísland tapaði í undanúrslitum Norðurlandameistarnir fengu stóran skell í fyrsta leik EM Matareitrun á EM: Fimm veikar í íslenska hópnum og ein fór á sjúkrahús Brunson hjálpar Knicks með því að skilja fimmtán milljarða eftir á borðinu Búin að bæta nýliðametið þótt að það séu enn sextán leikir eftir Innlit í nýtt íþróttahús Njarðvíkinga: „Þetta er þvílíkt mannvirki“ Íslensku stelpurnar í undanúrslit eftir stórsigur á Írum Caitlin Clark með tölur sem hafa aldrei sést í NBA né WNBA Kawhi vildi spila á Ólympíuleikunum en var sendur heim Agnes og Eva atkvæðamestar í tapi fyrir Tékkum Danski Jokic í Bónus-deildina „Sannfærð um að þessi samningur lyfti körfuboltanum enn meira upp“ Subway deildin verður Bónus deildin Reiknar með því að hinn fjörutíu og tveggja ára Hlynur troði á komandi tímabili Tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Grindvíkingar fá landsliðskonu frá Njarðvík Álftanes fær til sín leikjahæsta Stjörnumanninn Giannis á leið á sína fyrstu Ólympíuleika Sjá meira