Körfubolti

KR í undanúrslit - Patterson með þrennu

Tyson Patterson var með þrefalda tvennu í sigri KR í kvöld
Tyson Patterson var með þrefalda tvennu í sigri KR í kvöld

KR-ingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta með sigri á ÍR í oddaleik 91-78. Gestirnir úr Breiðholtinu höfðu yfir í hálfleik, en heimamenn skelltu í lás í vörninni í þeim síðari og völtuðu yfir gestina, eftir að hafa unnið þriðja leikhlutann 25-5.

Fannar Ólafsson skoraði 22 stig fyrir KR, Jeremiah Zola 20 og Tyson Patterson var með þrefalda tvennu 17 stig, 10 stoðsendingar og 14 fráköst. Hreggviður Magnússon skoraði 21 stig fyrir ÍR, Nate Brown skoraði 14 stig, hirti 10 fráköst og gaf 7 stoðsendingar og Eiríkur Önundarson skoraði 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×