Körfubolti

Frábær sigur hjá Grindavík

Grindvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum með frábærum sigri á Skallagrími í Borgarnesi 97-81 í oddaleik. Grindvíkingar komu gríðarlega einbeittir til leiks og þó heimamenn hafi komist inn í leikinn í síðari hálfleik og náð að komast yfir, sýndu gestirnir mikla seiglu og tryggðu sér sigur.

Darrell Flake hélt heimamönnum á floti í leiknum  og skoraði 31 stig og hirti 8 fráköst. Pétur Guðmundsson kom næstur með 15 stig, en þeir Dimitar Karadzovzki og Jovan Zdravevski komust aldrei almennilega í takt við leikinn og skoruðu samtals 23 stig - þá komst Axel Kárason ekki á blað.

Jonathan Griffin var frábær í liði Grindavíkur, skoraði 28 stig, hirti 6 fráköst og gaf 6 bolta og Adam Darboe stóð honum ekki langt að baki og skoraði 22 stig.  Báðir hittu þeir einstaklega vel úr skotum sínum í leiknum. Páll Axel Vilbergsson skoraði 15 stig úr aðeins 8 skotum og Þorleifur Ólafsson var drjúgur með 12 stig.

Grindvíkingarnir mæta grönnum sínum úr Njarðvík í undanúrslitum. Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast KR og Snæfell.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×