Fótbolti

Fyrsta tap Arsenal á tímabilinu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Luis Fabiano fagnar marki.
Luis Fabiano fagnar marki.

Tap Arsenal fyrir Sevilla í Meistaradeild Evrópu í kvöld var fyrsti tapleikur liðsins á tímabilinu. Spænska liðið var mun betra liðið í leiknum og átti þennan 3-1 sigur svo sannarlega skilið.

William Gallas var ekki í vörn Arsenal í kvöld og virtist það hafa mikil áhrif.

Arsenal hefur enn ekki tapað leik í ensku úrvalsdeildinni en eftir úrslit kvöldsins komst Sevilla í toppsæti riðilsins í Meistaradeild Evrópu.

Arsenal er þó öruggt áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar þó liðið missi líklega af efsta sætinu í H-riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×