Markmiðið er að koma liðinu í A-deild 19. desember 2007 13:42 Ágúst Björgvinsson ætlar sér stóra hluti með kvennalandsliðið Mynd/Stefán Karlsson
Ágúst Björgvinsson skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við KKÍ og mun stýra kvennalandsliðinu næstu fjögur árin. Hann er mjög spenntur fyrir verkefninu. "Ég var mjög spenntur þegar mér var boðið að taka við liðinu og þekki flestar þessar stelpur mjög vel frá því ég var með yngra landsliðið og hinar eftir að hafa þjálfað á móti þeim þegar ég var hjá Haukum, þannig að ég veit nokkurn veginn hvað þær geta og geta ekki. Ég held að sé hægt að gera mjög flotta hluti með þetta lið, en ég held að það velti líka mikið á því að þessir eldri leikmenn í hópnum gefi kost á sér og séu tilbúnir í þessi verkefni. Það verður erfitt að fara á mót með of ungt lið, af því liðið er frekar ungt. En ég vona að sem flestir leikmennirnir gefi kost á sér í þetta verkefni," sagði Ágúst. Ágúst ætlar að leggja mikið upp úr stífum æfingum eins og hann hefur gert þar sem hann hefur verið við stjórnvölinn og á því verður engin breyting nú. "Það eru alltaf einhverjar fórnir sem þarf að færa ef maður ætlar að gera eitthvað sem enginn hefur gert áður. Ég mun láta liðið æfa stíft yfir sumartímann en við munum líka hittast fljótlega og fara yfir þetta svo allir geti fengið sitt sumarfrí. Leikmennirnir þurfa að skipuleggja sig mjög vel til að þetta gangi upp," sagði Ágúst. Fyrsta verkefni kvennalandsliðsins verður Norðurlandamótið næsta sumar. "Þjóðir eins og Svíar og Finnar eru auðvitað talsvert fyrir framan okkur eins og staðan er í dag, en við munum reyna að fara í þetta mót til að gera okkar besta. Aðalmarkmið okkar verður að bæta árangur síðustu ára og reyna að bæta liðið jafnt og þétt. Það er hægt að ná bætingum þó það skili sér kannski ekki endilega í úrslitum. Ég er búinn að taka að mér fjögurra ára verkefni og langtímamarkmiðið hjá mér er að verða búinn að koma liðinu í A-deild á þeim tíma," sagði Ágúst.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira