Tónlist

Benni og Lekman í hljóðver

Jens Lekman á tónleikunum í Norræna húsinu síðastliðið föstudagskvöld.
Jens Lekman á tónleikunum í Norræna húsinu síðastliðið föstudagskvöld. Hrönn

Tónlistarmennirnir Benedikt Hermann Hermannsson og hinn sænski Jens Lekman fóru í hljóðver um síðustu helgi og tóku upp nokkur lög saman. Ekki hefur verið ákveðið hvenær lögin koma út.

Benedikt segir að það hafi verið frábært að vinna með Lekman. „Hann er mjög indæll náungi og skemmtilegur,“ segir Benni, sem starfaði fyrst með Lekman á síðustu Airwaves-hátíð. „Hann var beðinn um að spila á Airwaves og á leiðinni hingað sendi hann mér „email“ og spurði hvort ég og nokkrir aðrir værum til í að spila með honum í einu lagi. Í þeirri ferð tókum við upp eitt lag saman sem var gefið út á sjö tommu,“ segir hann.

Lekman hélt tónleika í Norræna húsinu síðastliðið föstudagskvöld. Mætti hann með bassaleikara og trommara með sér en auk þess spilaði Benni með honum næstum alla tónleikana ásamt fjórum blásurum. Á dagskránni voru meðal annars tvö lög eftir Benna þar sem Lekman var gestasöngvari; Aldrei og I Can Love You In A Wheelchair Baby.

Einnig söng Benni með Lekman á sænsku. „Ég skuldaði honum. Hann er búinn að syngja með mér á íslensku,“ segir Benni og bætir því við að það hafi gengið merkilega vel að læra sænskuna.

Framundan hjá Benna Hemm Hemm er tónleikaferð um Norðurlönd sem verður farin í lok október eða byrjun nóvember. Engin plata er fyrirhuguð með hljómsveitinni fyrir næstu jól en síðustu tvær plötur hennar hafa fengið mjög góðar viðtökur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.