Innlent

Gæsluvarðhald vegna ráns í 10-11

Annar mannanna sem handtekinn var vegna ránsins í 10-11 versluninni við Barónsstíg í fyrrinótt, var í gærkvöldi úrskurðaður í gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hinum var sleppt en þriðja mannsins, sem er grunaður um að hafa farið fyrir hinum tveimur, er enn leitað.

Öryggismyndavélar í versluninni náðu glöggum myndum af honum og veit lögregla hver hann er. Ekki liggur fyrir hvort skambyssan, sem þeir notuðu til að hóta afgreiðslustúlkunum, er fundið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×