Innlent

Breiðavíkurdrengur segir erfitt að rifja upp "helvíti á jörð"

Frá Breiðavík. Myndina er að finna á heimasíðu Breiðavíkursamtakana.
Frá Breiðavík. Myndina er að finna á heimasíðu Breiðavíkursamtakana.

"Það var mjög erfitt að rifja upp þetta helvíti á jörð og ég táraðist í viðtalinu," segir Guðmundur Gissurarson einn þeirra sem sendir voru á Breiðavíkurheimilið árið 1962 þá níu ára gamall. Guðmundur var einn þeirra sem fóru í viðtal í dag til nefndarinnar sem ríkisstjórrnin skipaði til að rannsaka málefni Breiðavíkurheimilisins. Alls hefur nefndin boðað rúmlega 60 fyrrum vistmenn í Breiðuvík til viðtals.

Fram kemur í samtali visir.is við Guðmund að ástæða þess að hann var sendur til Breiðavíkur var að hann rændi úr peningaskáp Búnaðarfélagsins um miðjan dag árið 1962. Hann segir að ástandið hafi verið slæmt er hann kom á staðinn en versnaði að mun þegar Þórhallur Halfdánarson tók við stjórn heimilisins. "Hann var djöfull í mannsmynd að mínu mati," segir Guðmundur. "Sífullur togarajaxl en notaði ofbeldi sem svar við öllum vandmálum."

Guðmundur segir að þau þrjú ár sem hann hafi verið vistaður á Breiðuvík hafi ætíð verið starfsmannahallæri á heimilinu. "Þetta olli því að við strákarnir þurftum að sinn öllum bústörfunum og ég var gerður að kokki staðarins 11 ára gamall þar sem ég var sá eini á staðnum sem kunni að elda," segir Guðmundur. "Þetta olli því að kennsla var lítil sem engin fyrir okkur á staðnum og barnaskólalærdómur minn fór því algerlega forgörðum þennan tíma sem ég var þarna."

Fram kemur í máli Guðmundar að þótt það hafi verið mjög erfitt fyrir hann að rifja upp tíma sinn í fyrrgreindu viðtali hafi það hjálpað mikið sú umræða sem þegar hefur farið fram um málið í fjölmiðlum. "Og Breiðavíkursamtökin hafa einnig stutt vel við bakið á okkur sem lentum í þessu," segir Guðmundur.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×