Lífið

Reka hótel í Ölpunum

Roald Eyvindsson skrifar
Þorgrímur Kristjánsdóttir og Þuríður Þórðardóttir reka hótelið Skihotel Speiereck í Ölpunum, en árlega leggur fjöldi Íslendinga leið sína þangað á vegum ferðaskrifstofunnar Heimsferða.
Þorgrímur Kristjánsdóttir og Þuríður Þórðardóttir reka hótelið Skihotel Speiereck í Ölpunum, en árlega leggur fjöldi Íslendinga leið sína þangað á vegum ferðaskrifstofunnar Heimsferða.

„Hótelið kallast Skihotel Speiereck og er í litlu fjallaþorpi, Sankt Michael, 100 km suður af Salzburg. Við erum á Alpahryggnum í sólríkasta hluta Austurríkis,“ útskýrir annar eigendanna, Þorgrímur Kristjánsson, hress í símann og bætir við að náttúrufegurðin sé engu lík, þar sem fjöllin gnæfi beggja megin við hótelið og allt sé í blóma á sumrin.

Að sögn Þorgríms er hótelið átján herbergja og í svokölluðum rustik-stíl, sem er gamaldags Alpastíll og einkennist af miklum tréútskurði. Hann segir hótelið búið öllum helstu nútímaþægindum, þar á meðal saunu, líkamsræktarherbergi og ljósabekk og stórum veitingasal með útsýni suður yfir fjöllin, sem eru sum allt að 2.500 metra há.

„Hótelgestirnir þurfa síðan ekki að hafa áhyggjur af því að leiðast,“ segir Þorgrímur.

„Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér eru frábærar gönguleiðir og hægt að leigja sér fjallahjól. Fólk getur alltaf haft viðkomu í veitingaskálum, sem eru allt um kring, og fengið sér hressingu. Hér fást heimagerðar gúllassúpur, ostar, pylsur og speck, sem er vindþurkkað svína- og nautakjöt.

Þá er hægt að fara í útreiðatúra, river-rafting, fjallaklifur og golf. Svo er sjóskíða- og seglbrettaleiga í hálftíma akstursfjarlægð. Svæðið breytist síðan í skíðaparadís á veturna.“

Þorgrímur segir að ef um stóra hópa sé að ræða, tuttugu manns og fleiri, þá sé heljarinnar veislu slegið upp meðan á dvölinni stendur.

„Við bjóðum upp á heilt grillað svín, sem er borið fram á bretti skreytt stjörnuljósum. Eftir mat heldur austurrísk tírólahljómsveit uppi fjörinu. Allt er gert til að gestunum líði sem best.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.