Breska tímaritið Classic FM Magazine gerir ferli stórsöngvarans Garðars Thórs Cortes góð skil í febrúarhefti sínu og segir hann vera björtustu vonina í óperuheiminum um þessar mundir, eða „Hot Property".
Classic FM Magazine er eitt vinsælasta tímaritið um sígilda tónlist í Bretlandi og selst í þúsundum eintaka. Í greininni má sjá að blaðið bindur miklar vonir við disk Garðars sem kemur út í febrúar og segir hann vera ómissandi í safnið. Skemmtilegan mola er að finna neðst á síðunni en þar er greint frá því að systir besta vinar Garðars sé besta vinkona söngkonunnar Bjarkar Guðmundsdóttur.
„Ísland er lítið land," er útskýringin á þessum skrifum.
Einar Bárðarson, umboðsmaður Garðars, segir þetta vera stórkostlega byrjun á árinu og hann hefði varla getað beðið um neitt betra en fyrsta sólóplata Garðars kemur út í byrjun febrúar. Hann vildi hins vegar lítið segja um yfirvofandi tilboð frá Universal sem Fréttablaðið hefur þegar sagt frá. „Það er fundur hjá okkur seint í næstu viku en hann er bara einn af mörgum," sagði Einar.
Garðar er nýkominn til landsins eftir langa útiveru í Bretlandi en hann hefur verið á tónleikaferð með Katherine Jenkins um gjörvallt Bretland og sungið fyrir fullu húsi.