Sport

Stefan Everts þjálfar KTM á spáni

Redbull / KTM liðið 2007
Redbull / KTM liðið 2007 Mynd/MXMX1

Stefan Everts sem hefur lagt krossskóna á hilluna og þjálfar nú Redbull / KTM liðið á spáni. Everts sem er hefur orðið tíu sinnum Evrópumeistari í motocross hefur tekið við sem liðstjóri Redbull / KTM og þjálfar liðið nú stíft í motocross skóla Everts norður af Valencia.

Þar æfa þeir David Philippaerts og Jonathan Barragan fyrir MX1, Tyla Rattray og Tommy Searle fyrir MX2 ásamt viðgerðamönnum sínum. "Þetta lítur allt mjög vel út fyrir komandi tímabil. Strákarnir leggja sig 100% fram og ég mun auðvitað leggja mín 100% á móti til að kenna þeim allt sem ég kann til að koma liðinu í fremstu röð" segir Everts. Fyrsta mótið í evrópska motocrossinu fer fram 1. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×