Greiða 67 milljónir árlega með Perlunni 4. mars 2007 08:45 Auk rekstrarkostnaðarins rýrnar verðmæti hennar um sextíu milljónir á hverju ári. Bygging hennar kostaði á sínum tíma vel á þriðja milljarð króna á núvirði.
Reykjavík Orkuveita Reykjavíkur (OR), sem er í meirihlutaeigu borgarinnar, greiddi tæplega 67 milljónir með Perlunni árið 2005. Heildarkostnaður vegna hennar það árið nam rúmum áttatíu milljónum, en tekjurnar voru fjórtán milljónir. Stærsti kostnaðarliðurinn er fasteignagjöld, en OR greiddi rétt um 45 milljónir í þau á umræddu ári. Að sögn Hjörleifs Kvaran, aðstoðarforstjóra OR, er þessi kostnaður hefðbundinn milli ára. Auk rekstrarkostnaðar rýrnar verðmæti Perlunnar um sextíu milljónir á ári. Perlan kostaði vel á þriðja milljarð króna á núvirði í byggingu. Hún var tekin í notkun árið 1991. Því má ætla að rekstrartap vegna hennar frá þeim tíma nemi rúmlega milljarði króna auk fyrningar á verðmæti hennar, sem er svipuð upphæð. Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarformaður OR, segir upphaflegan tilgang byggingarinnar hafa verið að koma upp tákni fyrir borgina. „Reykjavíkurborg yrði ekki söm án Perlunnar og mér finnst mikil prýði af henni. Það er náttúrlega æskilegt og í sjálfu sér alltaf markmið að lækka kostnað vegna hennar og ná fram meiri hagræðingu í rekstrinum. Margar tillögur hafa komið fram um það en flestar hafa verið þess eðlis að það hefur verið erfitt að fara út í þær.“ Hann segir fasteignagjöldin vissulega vera há en taka verði tillit til þess að þau greiðist til eiganda OR, Reykjavíkurborgar. Því sé raunverulega verið að færa fé vasa á milli. Að sögn Guðlaugs yrði það afskaplega flókið mál að selja Perluna jafnvel þótt vilji væri fyrir því. „Við seljum til að mynda ekki hitaveitutankanna. Það held ég að væri afar óskynsamlegt því við þurfum á þeim að halda. Þeir eru allir í fullri notkun hjá Orkuveitunni fyrir utan þennan eina sem er notaður sem safn.“ Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir það ekki þjóna neinum tilgangi að velta sér upp úr réttmæti þess að ráðast í byggingu Perlunnar. „Það var gert og hún er þarna. En það er auðvitað slæmt að borgin sé að greiða þessar fjárhæðir með henni árlega. Ég held að það sé hægt að nýta hana mun betur en til að hýsa útsölumarkaði líkt og nú er gert.“
Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Pilturinn áfram bak við lás og slá Sjá meira