Lífið

Eastwood sæmdur æðstu viðurkenningu Frakka

Clint Eastwood horfir á meðan Jacques Chirac forseti Frakklands og sonur hans Kyle tala saman.
Clint Eastwood horfir á meðan Jacques Chirac forseti Frakklands og sonur hans Kyle tala saman. MYND/AP

Bandaríski kvikmyndaleikarinn og leikstjórinn Clint Eastwood hefur hlotið æðstu viðurkenningu frakka, Heiðursverðlaunamedalíuna. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í Elysee höllinni í París í dag.

Jacques Chirac forseti Frakklands kallaði nýjustu myndir leikstjórans, Flags of our fathers og Letters from Iwo Jima; "kennslustundir í manngæsku.

Viðurkenningin er veitt í fimm flokkum og fékk Clint viðurkenninguna á neðsta stigi, riddaraviðurkenningu.

Napoleon Bonaparte veitti verðlaunin fyrst árið 1804.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.