Ætlar í mál við Ísland í dag 25. apríl 2007 06:00 Steingrímur Sævarr ólafsson ritstjóri Íslands í dag segir það alrangt að forsvarsmönnum Húsaleigu ehf. hafi ekki gefist kostur á að koma athugasemdum á framfæri í þættinum. Hann ætlar að halda áfram með málið.
Stefán Kjærnested, forsvarsmaður Húsaleigu ehf., sendi í gær frá sér tilkynningu um að félagið hefði falið lögmönnum sínum að höfða mál á hendur dægurþættinum Íslandi í dag vegna meiðyrða. Tilefnið er umfjöllun þáttarins á mánudaginn um aðbúnað erlendra verkamanna hér á landi. Í tilkynningunni segir að forsvarsmenn félagsins hafi ítrekað reynt að koma á framfæri ábendingum við Ísland í dag vegna málsins, en talað fyrir tómum eyrum. Í áskorun sem lögmaður félagsins sendi Steingrími Sævari Ólafssyni, ritstjóra Íslands í dag, er skorað á þáttinn að hætta við áframhaldandi umfjöllun um Húsaleigu ehf. og forsvarsmenn þess til að baka sér ekki auknar refsi- og skaðabótakröfur í fyrirhuguðu dómsmáli. Steingrímur Sævarr segir það alrangt að forsvarsmönnum Húsaleigu ehf. hafi ekki gefist kostur á að koma athugasemdum sínum á framfæri í þættinum. „Þátturinn hefur staðið Stefáni opinn og stendur honum opinn. Við höfum ítrekað reynt að fá hann til að tjá sig um þessi mál í þættinum en hann hefur alltaf hafnað því. Þess vegna kom þessi yfirlýsing okkur mjög á óvart. En að sjálfsögðu stöndum við við allt það sem við höfum verið að segja og höldum áfram með málið.“
Mest lesið Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Innlent Fleiri fréttir Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð „Bara einfalt að leyfa fólki að leita að olíu“ Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Gosvá á höfuðborgarsvæðinu, dauðastríð og áhorfendabann Katrín vill leiða framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar Hagræðingarhópurinn kostaði rúmar sjö milljónir Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Landris hraðara en eftir síðustu eldgos Gefur kost á sér þrátt fyrir „krankleika“ í vetur og á ekki von á „heiftúðlegum átökum“ „Ekki leika þennan leik“ Félag atvinnurekenda svarar Ríkisendurskoðun Svava Lydia komin í leitirnar „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Milljarðakrafa varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Logi í Úkraínu og markaðirnir rétta úr kútnum Myndavélarnar mikilvægar og upptökurnar góð sönnunargögn „Alvarlegt að saka ríkisendurskoðanda um að villa um fyrir Alþingi“ Norðurlöndin vinni með Bandaríkjunum svo þau fari ekki í „ranga átt“ Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Vilja betri afkomutryggingu fyrir bændur sem verða fyrir uppskerutjóni Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Sjá meira