Körfubolti

Haukar steinláu í Vesturbænum

Benedikt Guðmundsson og lærisveinar hans í KR gefa ekkert eftir í toppbaráttunni.
Benedikt Guðmundsson og lærisveinar hans í KR gefa ekkert eftir í toppbaráttunni.

KR-ingar unnu yfirburðasigur á Haukum í kvöld, 105-67, og komust þannig við hlið Njarðvíkur á toppi Iceland-Express deildar karla á ný. Einn annar leikur var á dagskrá í kvöld, Skallagrímur vann Fjölni með 100 stigum gegn 89.

KR og Njarðvík eru nú með 26 stig en Skallagrímur og Snæfell koma þar á eftir í 3.-4. sæti með 24 stig. Fjölnir og Haukar eru í fallsætum deildarinnar, hafa bæði hlotið sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×