Viðskipti innlent

Icelandic Glacial með víðtæka dreifingu í N-Ameríku

Íslenska fyrirtækið Icelandic Water Holdings, sem framleiðir átappað vatn á flöskum undir vörumerkinu Icelandic Glacial í Þorlákshöfn, hefur gert samning við kanadíska fyrirtækið Leading Brands um dreifingu á vatninu í Kanada og í Bandaríkjunum. Fyrirtækið mun meðal annars selja vatnið í verslanakeðjunum Shoppers Drug Mart, Whole Foods Markets og í Wal-Mart auk annarra verslana.

Haft er eftir Kristján Ólafssyni, sölustjóra fyrirtækisins í tilkynningu að dreifingarsamningur sé mikilvægur áfangi í markaðssetningu á íslensku vatni í Norður-Ameríku.

Leading Brands mun dreifa íslensku vatni sem kemur í flöskum af þremur stærðum, allt frá hálfum lítra til eins lítra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×