Tónlist

Safnplata á leiðinni

Sigur Rós á tónleikum í Ólafsvík í fyrra. Safnplata frá sveitinni er væntanleg 5. nóvember.
Sigur Rós á tónleikum í Ólafsvík í fyrra. Safnplata frá sveitinni er væntanleg 5. nóvember. mynd/kóó

Hljómsveitin Sigur Rós gefur út safnplötuna Hvarf-Heim hinn 5. nóvember, sama dag og tónleikamynd sveitarinnar Heima kemur út. Plötunni verður skipt í tvo hluta. Á fyrri hlutanum, Hvarf, verða þrjú áður óútgefin lög sem nefnast Salka, Hljómalind og Í gær. Einnig verður þar endurhljóðblönduð útgáfa af laginu Von af plötunni Vonbrigði. Á síðari hluta safnplötunnar, Heim, verða sex lög í órafmögnuðum útgáfum. Heita þau Samskeyti, Starálfur, Vaka, Ágætis byrjun, Heysátan og Von.

„Við völdum lög sem voru í miklu uppáhaldi hjá okkur,“ sagði Orri Páll Dýrason trommari í spjalli við heimasíðu breska tónlistartímaritsins NME.

Tónleikamyndin var tekin upp víðs vegar um Ísland á síðasta ári, þar á meðal á Klambratúni og í Ásabyrgi, og er hennar beðið með mikilli eftirvæntingu. „Það var gaman að spila á þessum tónleikum, sérstaklega fyrir framan vini okkar,“ sagði Orri. „Stundum spiluðum við á stórum tónleikum en við spiluðum líka á litlum svæðum sem voru mjög falleg.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.