Formúla 1

Alonso aftur til Renault

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fernando Alonso mun aftur klæðast búningi Renualt á næsta tímabili.
Fernando Alonso mun aftur klæðast búningi Renualt á næsta tímabili. Nordic Photos / AFP

Fernando Alonso greindi frá því í dag að hann muni ganga til liðs við Renault á nýjan leik.

Alonso gekk til liðs við McLaren fyrir síðasta tímabil eftir að hann varð heimsmeistari tvö ár í röð með Renault. Upp úr sauð milli hans og Lewis Hamilton á síðasta tímabili með þeim afleiðingum að Alonso fékk sig lausan undan samningi sínum.

Renault vildi ekki staðfesta hversu langur samningur Alonso væri við liðið né heldur hvers virði hann væri. Getgátur eru um að Alonso fái allt að 25,2 milljónir dollara í laun, um einn og hálfan milljarð króna.

Heikki Kovalainen fer frá Renault og Brasilíumaðurinn Nelson Piquet yngri mun keppa við hlið Alonso.

Talið er líklegt að Kovalainen fari annað hvort til McLaren eða Toyota.

„Ég ólst upp í Formúlunni hjá þessu liði. Nú er kominn tími til að rita nýjan kafla saman í sögu þess,“ sagði Alonso. „Renault átti erfitt uppdráttar á síðasta tímabili en ég veit hvað býr í því. Ég er handviss um að það geti teflt fram öflugum bíl á næsta tímabili og barist um titilinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×