Leikjavísir

Útgáfudagur Halo 3

MYND/halo3.com

Microsoft hefur ákveðið útgáfudag fyrir Halo 3 tölvuleikinn, sem er 25. september. Mikil eftirvænting ríkir á meðal leikjaspilara fyrir leiknum og vonast Microsoft til þess að útgáfan auki sölu á Xbox 360 leikjatölvunni.

Halo 3 er þriðji Halo leikurinn frá Microsoft. Fyrri tveir leikirnir Halo og Halo 2 hafa notið gríðarlegra vinsælda. Í Halo 3 heldur barátta framtíðarhermanna áfram við geimverur í geysilegu stríði sem senn tekur á enda.

Búist er við því að leikurinn verði sterkt vopn í höndum Microsoft gegn Sony og Nintendo í stríði um yfirráð á leikjatölvumarkaðnum sem metinn er á um 30 milljarða dollara.

Fyrsti Halo leikurinn kom út í nóvember árið 2001 á sama tíma og fyrsta Xbox tölvan. Halo var ein af ástæðum þess að Xbox náði fótfestu á markaðnum.

Halo 2 kom út í nóvember árið 2004 og seldist fyrir um 125 milljónir dollara á fyrsta degi. Með því að gefa nýja leikinn út í september vonast Microsoft til þess að auka við notendafjölda sinn fyrir jólavertíðina sem er risastór á þessum markaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.