Golf

Tiger Woods: „Reynslan mun nýtast mér.“

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Tiger Woods er sannfærður um að reynslan muni nýtast honum þegar hann leikur lokahring sinn í dag á Opna Bandaríska Meistaramótinu. Woods er tveimur höggum á eftir Aaron Baddeley, sem er með bestu stöðuna eftir þrjá hringi.

Woods er sá eini af efstu sex kylfingunum sem hefur unnið stórmót. „Þeir eru að fara að kljást við margar tilfinningar sem þeir hafa ekki fundið áður," sagði Woods. „Það hjálpar að hafa reynsluna. Ég hef verið í baráttunni áður og veit hvað þarf til að vinna," bætti hann svo við. Woods hefur aldrei unnið stórmót þegar hann er ekki með bestan árangur eftir þrjá hringi.

Aaron Baddeley er ákveðinn í að láta pressuna ekki hafa áhrif á leik hans. „Ég er mannlegur, ég á eftir að eiga einhver slæm högg," sagði Baddeley sem er með tveggja högga forskot á Woods.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×