Erlent

Vilja ekki spá fyrir um heilsu Kastrós

MYND/AP

Æðstu prestar algengustu trúarbragða á Kúbu, hinnar afrísk-kúbönsku Santeria-trúar, neituðu að spá nokkuð fyrir um heilsu Fídels Kastrós á nýju ári. Kastró hefur ekki sést opinberlega í rúmlega fimm mánuði.

Nýársspá prestanna er árlegur viðburður og bíður þjóðin hennar með mikilli eftirvæntingu. Prestarnir spáðu aukinni hættu á farsóttum, hernaðaríhlutun og njósnum á árinu 2007.

Einnig spáðu þeir aukinni efnahaglegri velferð í kommúnistaríkinu og nýjungum í landbúnaði sem bættu bágan búrkost hjá kúbverskum fjölskyldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×