Viðskipti innlent

Straumur-Burðarás með útibú í Lundúnum

Breska þinghúsið í Lundúnum í Bretlandi.
Breska þinghúsið í Lundúnum í Bretlandi.

Breska fjármálaeftirlitið (FSA) hefur veitt Straumi-Burðarási Fjárfestingabanka leyfi til að starfrækja útibú í Lundúnum í Bretlandi. Straumur hóf starfsemi í borginni á mánudag.

Í tilkynningu frá Kauphöll Íslands kemur fram að starfsemi útibúsins muni í fyrstu snúa að útlánastarfsemi, einkum í formi sambankalána þar sem Straumur-Burðarás er ýmist þátttakandi eða leiðandi lánveitandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×