Innlent

Harður árekstur við Munaðarnes

MYND/AP

Harður árekstur varð norðan við Munaðarnes við bæinn Grafarkot rétt fyrir klukkan fjögur í dag þegar jeppi og flutningabifreið skullu saman. Beita þurfti klippum til þess að ná ökumanni jeppans, sem var einn á ferð, út úr bifreiðinni.

Ökumaður jeppans var fluttur á slysadeild Landspítalans Háskólasjúkrahús með þyrlu. Í flutningabifreiðinni var einn farþegi ásamt ökumanni og sluppu báðir ómeiddir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×