Erlent

Flugvöllurinn í Edinborg rýmdur

Öllum brottförum var frestað og farþegar og starfsfólk flutt á Hilton hótelið við flugvöllinn.
Öllum brottförum var frestað og farþegar og starfsfólk flutt á Hilton hótelið við flugvöllinn.

Alþjóðaflugvöllurinn í Edinborg var rýmdur af öryggisástæðum í dag eftir að dularfullur poki fannst í innskráningarsal.

Talsmaður flugvallarins sagði Reuters fréttastofunni að allt starfsfólk og farþegar hefðu verið fluttir á brott á meðan sprengjusveit rannsakaði pokann og fjarlægði hann.

Flugvélum var gefið lendingarleyfi, en allar brottfarir hafa verið stöðvaðar.

Ríkisstjórnin telur hættu á hryðjuverkum í Bretlandi verulega og er viðbúnarstig á næst hæsta stigi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×