Erlent

Á fimmta tug pílagríma liggur í valnum

Á fimmta tug pílagríma lét lífið í fjölmörgum árásum í nágrenni Bagdad í dag, um það leyti sem Ashura-trúarhátíð sjía stóð sem hæst. Þar af voru sjö skotnir til bana þegar þeir voru á leið með rútu frá hinni helgu borg Karbala.

Mikil spenna ríkir jafnan á milli sjía og súnnía meðan á hátíðinni stendur en þá minnast þeir fyrrnefndu dauða Husseins, dóttursonar Múhameðs spámanns. Er skemmst að minnast hryðjuverkanna sem framin voru í Karbala og Bagdad í mars 2004 en þá týndi 171 pílagrímur lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×