Erlent

Kefluðu ungabörn

Starfsfólk sjúkrahúss í Jekaterinburg í Rússlandi var staðið að því að kefla ungabörn á spítalanum til að koma í veg fyrir að grátur þeirra heyrðist. Sjúklingur á spítalanum heyrði niðurbælt kjökur barnanna og tók myndir af þeim með límband fyrir munninum. Reiði ríkir meðal almennings vegna þessa hneykslis. Aðstæður á rússneskum sjúkrahúsum eru bágbornar og talið er að þaggað hafi verið niður í börnunum með þessum hætti vegna manneklu á deildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×