Erlent

Ekki brenna konur lifandi!

Það er alveg bannað að brenna konur lifandi í Herouxville í Quebek í Kanada.
Það er alveg bannað að brenna konur lifandi í Herouxville í Quebek í Kanada.

Innflytjendum til smábæjar í Quebec í Kanada hefur verið sagt að ekki megi grýta konur til bana á almannafæri, brenna þær lifandi eða skvetta á þær sýru.

Þessar óvenjulegu reglur eru birtar á vef bæjarins Herouxville og hafa aukið spennu varðandi umburðarlyndi íbúa gagnvart hefðum og siðum innflytjenda.

Á vefsíðunni eru innflytjendur upplýstir um að konur megi keyra, kjósa, dansa, skrifa ávísanir, klæða sig að eigin ósk, vinna og eiga fasteignir. Enginn úr bæjarstjórninn hefur fengist í viðtal út af málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×