Menning

Söguslóðir DV

Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV, leiðir gönguna Söguslóðir DV
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV, leiðir gönguna Söguslóðir DV

Nýtt útgáfufélag DV, Dagblaðið-Vísir ehf., efnir til göngu um söguslóðir DV á morgun, laugardaginn 10. febrúar. Hefst gangan klukkan 11:00 við Síðumúla 12 í Reykjavík, en langferðabifreið verður til staðar þar sem hluti leiðarinnar verður ekinn. Gengið verður undir leiðsögn Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi ritstjóra DV.

Jónas Kristjánsson var ritstjóri Vísis á árunum 1966 til 1975 og Dagblaðsins frá 1975 til 1981. Hann tók síðar við sameiginlegu blaði Dagblaðsins-Vísis árið 1981 sem ritstjóri, ásamt Ellerti B. Schram, en Jónas gjörþekkir sögu blaðsins.

Í göngunni verður saga DV rakin og helstu sögustaðir heimsóttir. Auk viðkomu í Síðumúla verður komið við í Þverholti og Skaftahlíð. Ferðinni lýkur síðan í Brautarholti 26, þar sem boðið verður upp á hressingu.

Gangan er opin öllum og ekki þarf að taka frá sæti í ferðina. Því er þó beint til gesta að mæta tímanlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×