Erlent

Hefur hikstað í þrjár vikur

Bandarísk unglingsstúlka virðist hafa orðið fyrir sérlega illu umtali því undanfarnar þrjár vikur hefur hún hikstað án afláts. Stúlkan hikstar um það bil fimmtíu sinnum á mínútu og eru læknar sem hafa rannsakað hana gersamlega ráðþrota yfir þessum hamagangi. Hvorki lyf né húsráð á borð við sykrað vatn og öndun í poka hafa dugað en sem betur fer fær stúlkan hvíld frá hikstunum þegar hún sefur. Ósjálfráðir krampar í þindinni og samdráttur í raddböndum í tengslum við þá valda hikstum en engin sérstök ástæða er fyrir sjálfum krömpunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×