Heildarútlán Íbúðalánasjóðs 4,4 milljarðar króna 12. mars 2007 09:57
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 4,4 milljörðum króna í febrúar. Þar af voru 960 milljónir króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán sjóðsins námu 3,5 milljörðum króna. Meðallán almennra útlána námu 9,2 milljónum króna, að því er segir í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Íbúðalánasjóður segir brunabótamat fasteigna á höfuðborgarsvæðinu og víðar enn langt undir markaðsvirði. Í mánaðarskýrslunni kemur fram að 28. febrúar síðastliðinn hafi Félagsmálaráðuneytið gefið út reglugerð um breytingu á lánshlutfalli og fjárhæð ÍLS-veðbréfa sem tók gildi 1. mars. Breytingin felur í sér að lánshlutfall almennra lána Íbúðalánasjóðs hækkar úr 80% í 90% og hámarksfjárhæð almennra lána hækkar úr 17 milljónum króna í 18 milljónir. Lánshlutfallið og hámarksfjárhæðin eru því færð í sama horf og þau voru áður en ríkisstjórnin greip til aðgerða í efnahagsmálum í lok júnímánaðar 2006. Reglugerð þessi tók gildi 1. mars s.l. Þá segir að þar sem viðmið við brunabótamat er enn í gildi hefur þessi breyting afar lítil efnahagsleg áhrif þar sem brunabótamat er enn langt undir markaðsvirði á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Megi gera ráð fyrir að þetta geti komið þeim sem kaupa sína fyrstu íbúð til góða.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Skiltið skuli fjarlægt Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Ekkert áfengi á sunnudögum og seint á kvöldin Viðskipti innlent Brúðhjónin fóru í hart og fá nýja skál fyrir hrærivélina Neytendur Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Viðskipti innlent „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Viðskipti innlent „Breytingaskeið kvenna hefur líka áhrif á karlavinnustaði“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Gengið frá sölu á hluta Endor Stofna félag utan um Origo og þrettán önnur rekstrarfélög Eina bakaríi bæjarins skellt fyrirvaralaust í lás Ekkert áfengi á sunnudögum og seint á kvöldin Alþjóðlegur risi leysir Wok on af hólmi Úr kirkjunni í brúna hjá Herjólfi Uppsagnir hjá ÁTVR Ragnheiður Theodórs ein af fimm til PLAIO Tveggja milljarða gjaldþrot Ingvars Jónadabs tók tíu ár 1,5 milljarða gjaldþrot og Landsbankinn fékk varla krónu Ráðin framkvæmdastjóri Pekron Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Sjá meira