Menning

Ljúka ekki við bók Beckhams

My side eftir David Beckham er meðal þeirra bóka sem Bretar ljúka ekki við að lesa.
My side eftir David Beckham er meðal þeirra bóka sem Bretar ljúka ekki við að lesa.

Harry Potter og eldbikarinn, My life eftir Bill Clinton og My side eftir David Beckham eru á meðal þeirra bóka sem Bretar klára ekki. Gerð var könnun á 4000 Bretum og í ljós kom að um helmingur bóka sem þeir kaupa eru ólesnar.

Sú skáldsaga sem mest er ólesin er bókin Vernon God Little eftir DBC Pierre. Bókin fjallar um fjöldamorð í framhaldsskóla í Bandaríkjunum. 35% þeirra sem höfðu keypt eða fengið bókina lánaða viðurkenndu að hafa ekki klárað söguna. 32% luku ekki við að lesa Harry Potter.

Í flokki rita almenns eðlis er bókinn The Blukent Tapes eftir David Bunket á toppnum. 35% svarenda kláraði ekki bókina. 30% kláruðu ekki Clinton og 27% kláruðu ekki Beckham.

Ókláraðar skáldsögur:

1 Vernon God Little, DBC Pierre

2 Harry Potter and the Goblet of Fire, JK Rowling

3 Ulysses, James Joyce

4 Captain Corelli's Mandolin, Louis De Bernieres

5 Cloud Atlas, David Mitchell

6 The Satanic Verses, Salman Rushdie

7 The Alchemist, Paulo Coelho

8 War and Peace, Leo Tolstoy

9 The God of Small Things, Arundhati Roy

10 Crime and Punishment, Fyodor Dostoevsky

Ókláruð rit almenns eðlis:

1 The Blunkett Tapes, David Blunkett

2 My Life, Bill Clinton

3 My Side, David Beckham

4 Eats, Shoots & Leaves, Lynne Truss

5 Wild Swans, Jung Chang

6 Allen Carr's Easy Way to Stop Smoking

7 The Downing Street Years, Margaret Thatcher

8 I Can Make You Thin, Paul McKenna

9 Jade: My Autobiography, Jade Goody

10 Why Don't Penguins' Feet Freeze?, Mick O'Hare






Fleiri fréttir

Sjá meira


×