Handbolti

Valsmenn komnir með tveggja stiga forystu

Valsmenn náðu í kvöld tveggja stiga forystu í DHL-deild karla í handbolta með því að leggja nýkrýnda bikarmeistara Stjörnunnar örugglega af velli í Laugardalshöllinni, 31-25. Valsmenn voru með yfirhöndina nánast allan leikinn og unnu verðskuldað.

Valur hefur nú 27 stig á toppi deildarinnar en HK er með 25 stig í öðru sæti eftir að hafa misst unnin leik niður í jafntefli á lokasekúndunni gegn Fram í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×