Körfubolti

Grindvíkingar að niðurlægja Íslandsmeistarana

Grindavík hefur haldið Íslandsmeisturum Njarðvíkur í 26 stigum í fyrri hálfleik í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Á sama tíma hafa Grindvíkingar skorað 56 stig og hafa því 30 stiga forystu í hálfleik. Hreint ótrúlegar tölur í Grindavík, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Hjá Njarðvík hefur hvorki Brenton Birmingham né Jeb Ivey komist á blað sem verður að teljast í hæsta máta óeðlilegt. Njarðvíkingar unnu fyrsta leik liðanna örugglega og hafa 1-0 forystu í einvíginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×