Innlent

Baráttusamtökin bjóða fram í öllum kjördæmum

Nýtt framboðsafl, Baráttusamtökin, sem berjast fyrir hagsmunum aldraðra, öryrkja og breyttu skipulagi borgarinnar, býður fram í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosningarnar í vor. Ein meginkrafan er að lágmarksbætur verði 210 þúsund krónur á mánuði.

Á bakvið framboðið standa baráttusamtök eldi borgara og öryrkja og Höfuðborgarsamtökin. Talsmenn samtakanna kynntu helstu stefnumál Baráttusamtakanna í morgun en þau krefjast meðal annars að skerðingar bóta, svo sem tekjutenging, verði afnumdar upp að 500 þúsund króna mánaðartekjum. Athygli vekur að hvorki heildarsamtök aldraðra né öryrkja standa formlega að framboðinu.

Arndís Björnsdóttir talsmaður Baráttusamtakanna segir að samþykktir heildarsamtaka aldraðra meini þeim að standa að framboðsmálum. Ólafur Ólafsson fyrrverandi landlæknir hafi þó t.d. hvatt framboðið og öryrkjar muni taka sæti á framboðslistum Baráttusamtakanna.

Höfuðborgarsamtökin sem barist hafa fyrir því að hætt verði að reka flugvöll í Vatsmýrinni og skipulagsbreytingum almennt í borginni, standa að framboðinu. Örn Sigurðsson formaður Höfuðborgarsamtakanna segir hagsmuni þessara hópa fari vel saman enda búi flestir aldraðir og öryrkjar á höfuðborgarsvæðinu.

Eitt baráttumálanna er að stöðva útþenslu höfuðborgarinnar. Örn segir að þar sé átt við að þenja borgina ekki frekar út, heldur byggja í Vatnsmýrinni. Það sé nægjanlegt byggingarland innan núverandi marka borgarinnar næstu 20 - 30 árin. Hér séu 700 bílar á hverja þúsund íbúa, en víðast hvar í Evrópu séu 400 bílar á hverja þúsund íbúa.

Baráttusamtökin stefna líka að framboði til sveitarstjórnakosninga árið 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×