Innlent

Niðurrif á húsum á Laugavegi 33, 35 og Vatnsstíg 4 heimilað

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar samþykktu á borgarstjórnarfundi nú í kvöld að heimila niðurrif á húsunum Laugavegur 33, 35 og Vatnsstígur 4.

Fulltrúar Vinstri grænna og F-lista voru á móti tillögunni og létu bóka mótmæli sín. Þeir segja húsin vera hluta gamallar götumyndar Laugarvegs. Bentu þau á ályktun Torfusamtakanna um að varðveita beri götumynd Laugavegar milli Vatnsstígs og Frakkastígs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×