Innlent

Hálkublettir víða á vegum

Rétt er að benda á í upphafi þessarar miklu ferðahelgi að hálka er á Siglufjarðarvegi og hálkublettir milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Eins eru hálkublettir á milli Akureyrar og Egilsstaða og víða hálkublettir á Austurlandi.

Aðrir vegir landsins eru að mestu greiðfærir en þó má búast við hálkublettum á fjallvegum. Vegna aurbleytu og hættu á vegaskemmdum er allur akstur bannaður á flest öllum hálendisvegum sem að jafnaði eru ekki færir nema að sumarlagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×