Innlent

Samgöngumiðstöð byggð óháð því hvort völlurinn verði áfram

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli óháða því hvort flugvöllurinn verði þar um alla framtíð. Hann segir samkomulag milli sín og borgarstjóra um að leita allra leiða til að ná sátt um flugvallarmálið.

Samgönguráðherra hefur falið Flugstoðum að hefja undirbúning að smíði samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli. Á sama tíma er nefnd um framtíð flugvallarins að kynna niðurstöður þess efnis að það kunni að vera þjóðhagslega hagkvæmara að gera nýjan flugvöll á Hólmsheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×