Körfubolti

Lykilmenn Grindavíkur framlengja samninga

Nafnarnir Páll Axel Vilbergsson og Páll Kristinsson, landsliðsmenn í körfubolta, hafa skrifað undir nýja samninga við lið Grindavíkur í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Páll Axel samdi til þriggja ára en Páll Kristinsson skrifaði undir tveggja ára samning. Þá er ljóst að Friðrik Ragnarsson verður áfram þjálfari liðsins á næstu leiktíð.

Fyrr í vikunni hafði annar lykilmaður liðsins, Þorleifur Ólafsson, skrifað undir nýjan þriggja ára samning. Þá er líklegt að Daninn Adam Darboe verði áfram í herbúðum Grindavíkurliðsins á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×