Verðbólga mælist 4,7 prósent 11. maí 2007 09:00
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,86 prósent á milli mánaða í maí en það jafngildir því að verðbólga mælist 4,7 prósent, samkvæmt útreikningum Haggstofu Íslands. Þetta er nokkuð meiri verðbólga en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir í spám sínum á dögunum. Töldur þær líkur á verðbólgan færi úr 5,3 prósentum frá síðasta mánuði allt niður í 4,3 prósent. Samkvæmt Hagstofunni jókst kostnaður vegna eigin húsnæðis um 1,0 prósent en það er aðallega til komið vegna hækkunar á markaðsverði. Þá hækkaði verð á mat og drykkjarvöru um 1,3 prósent og verð á bensíni og díselolíu um 3,1 prósent. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,7 prósent en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,5 prósent. Greiningardeildir bankanna voru nokkuð samstíga í spám sínum og gera ráð fyrir því að vísitala neysluverðs hækkaði allt frá 0,5 til 0,6 prósentustig á milli mánaða. Hefði það gengið eftir færi tólf mánaða verðbólgan úr 5,3 prósentum í 4,3 til 4,4 prósent. Greiningardeildir bentu allar á að helstu óvissuþættirnir í fyrri spám þeirra hafi verið verðhækkanir á fasteignum og eldsneyti, ekki síst hráolíuverði sem hafi sveiflast mikið það sem af er árs.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Viðskipti innlent Skiltið skuli fjarlægt Viðskipti innlent Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Indó lækkar líka vexti Viðskipti innlent Gerir óþægilegt samtal auðveldara Viðskipti innlent Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Ekkert áfengi á sunnudögum og seint á kvöldin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Gengið frá sölu á hluta Endor Stofna félag utan um Origo og þrettán önnur rekstrarfélög Eina bakaríi bæjarins skellt fyrirvaralaust í lás Ekkert áfengi á sunnudögum og seint á kvöldin Alþjóðlegur risi leysir Wok on af hólmi Úr kirkjunni í brúna hjá Herjólfi Uppsagnir hjá ÁTVR Ragnheiður Theodórs ein af fimm til PLAIO Tveggja milljarða gjaldþrot Ingvars Jónadabs tók tíu ár Sjá meira